Hósa í Sunnuhvoli
fjölskyldan
15.02.2009 23:12:18 / Hósa

Lífið í febrúar

Jæja febrúar er hálfnaður og hefur hann liðið á ofsahraða eins og svo sem tíminn er farinn að gera finnst mér. 
Nú það sem skeð hefur síðan ég bloggaði síðast - það byrjaði á Dalbæjarþorrablóti og var það alveg meiriháttar vel heppnað fyrir bæði íbúa og starfsfólk - makar starfsmanna komu um 20:30, makakórinn söng við góðar undirtektir og mikið var dansað.  Ég var svo beðin að stoppa hljómsveitina af þegar klukkan var komin aðeins yfir miðnætti og íbúar heimilisins allflestir farnir til rekkju.  Sumum fannst ótrúlegt að ég stoppaði hljómsveitina þar sem ég fengi aldrei nóg af gleðinni sem er svo sem satt en ég var nú hálf slöpp þennann dag, var með magapest á fimmtudagskvöldinu svo formið hefur oft verið betra.  Við Júlli fórum svo í matarklúbb kvöldið erftir hjá Siggu og Bjössa og var alveg meiri háttar matur svona samskot og mjög hugglulegt og gott kvöld sem varði vel fram á nótt.  Bjössi var nú svo yndislegur að keyra okkur heim - það var svo agalega kalt þessa nótt.  ;)
Reyndar er búið að vera mjög kalt núna undanfarið mikið frost, mjög fallegt veður.   Núna er hins vegar komin hláka - veit ekki hvort það er nokkuð betra, skíðasnjórinn verður ómögulegur ef hann fer ekki og hálka að ganga á götum.  Ég myndi helst vija hafa svona  5 stiga frost og  stillur allann veturinn og ekkert vesen alltaf hreint.   :p
Síðastliðinn fimmtudag var frumsýning hjá okkur í leiklestrinum á Skuggabjörgu, tókst það mjög vel og var mjög gaman.  Það komu um 60 manns að sjá og hlusta.  Við ætlum svo að sýna þetta aftur á Marsinum eða þá helgi. 8)
Núna um helgina var hittigur hjá Húsasmiðjunni heima hjá Gumma og Hólmfríði var ákveðið að hafa lambalæri með öllu tilheyrandi í staðinn fyrir þorramat - alveg meiriháttar veisla og huggulegheit.  Ég skrapp reyndar fyrst að jarðaför Bjarna frá Sunnuhvoli og fór Gísli bróðir með mér. fínt að hafa hann að keyra með.  Við hittum náttúrulega fullt af sveitungum í erfisdrykkjunni.  Athöfnin var mjög falleg og sönguinn alveg dýrðlegur.  Ég óska þess þegar ég fer að þar verði karlaraddir sem syngja yfir mér,  mér finnanst þær svo mikið fallegri.
Við Amalía fórum í bíó í dag á hundamyndina sem er að ganga núna, hún var alveg að springa úr spenningi, fékk svo öskudagsbúning svo ferðin var fullkomin fyrir hana.  Já það er svo sem alltaf eitthvað að ske, gaman að hafa nóg að gera en það liggur samt við að ég verði glöð þegar ég hef eitt kvöld sem ekkert er planað og maður getur bara slakað sér.
Við Júlli vorum að koma úr dansinum núna - það er svaka gaman þegar maður er aðeins farin að ná tökum á þessu.  Verst að maður fær alltof sjaldan tækifæri til að nota þetta.
Segi þetta nóg í bili, bið ykkur vel að lifa og farið vel með ykkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2009 22:09:08 / Hósa

Gleðilegt ár 2009

Já tíminn flýgur áfram það er ekki hægt að segja annað.  Það eru bara rúmur mánuður síðan ég bloggaði síðast svo það er ýmislegt sem á dagana hefur drifið þið getið rétt ímyndað ykkur. :p
Aðventan leið hratt, það eina sem ég náði að þrýfa var nú bara gluggarnir restin var nú bara tekið svona létt áður en ég setti upp skrautið sem er nú aftur komið í kassa og út  í bílskúr. 
Minn kæri svili Rúnar lést í byrjun desember svo allt og allt of snemma.  Við brunuðum strax suður á föstudeginum 5. des og var nú bara fínt veður og færi svoleiðis.  Við ætluðum suður þessa helgi í okkar árlegu kjötferð og hitta fjölskyldur okkar og planið var að ná í mömmu.  Þessi ferð var að sjálfsögðu ansi mikið öðru vísi en áætlað hafði verið en gott að við höfðum tíma til að stoppa aðeins og vera með fólkinu.  Það er svo vont að vera langt í burtu þegar svona skeður. 
Við keyrðum aftur heim til Dalvíkur á þriðjudegi en þá var nú sæmilegasta rok og hálka. Unnum í tvo daga, þó maður hefði nú eins getað sleppt því, hugurinn var nú ekki alveg við það sem hann átti að vera við.  Eftir vinnu á fimmtudeginum lögðum við svo aftur af stað suður en þá fór Gullý með okkur en Amalía varð þá eftir hjá Friðrikku og Alla.  Við lentum þá í þvílíku roki, vorum stoppuð í Borgarnesi því það fór upp í 60 m/sek í kviðunum undir Hafnarfjalli og þar var líka krapi.  Þá vorum við búin að lenda í því að það var flatt eitt dekkið þegar við komum út úr Staðarskála í pylsustoppi, lofti reddað og keyrt á Borðeyri til að fá dekki viðgert.   Allt gekk þetta samt vel að lokum og vorum við komin til Keflavíkur um klukkan 2 um nóttina alveg búin að fá nóg af roki og hálku í bili.  Útförin var á föstudeginum 12 des, mjög falleg athöfn.  

Mamma kom svo með okkur heim til Dalvíkur til að vera yfir jólin. Mamma er bara nokkuð brött en ég er alltaf hálf hrædd að hafa hana eina heima hér að hún detta og meiði sig.  Hún er svo voðalega völt.  Þess vegna var hún á Dalbæ þá daga sem ég var að vinna, svona í dagvist og líkaði henni það bara þokkalega þó hún væri hálf þreytt að vera innan um allt þetta gamla fólk eins og hún sagði. 

Jólin voru yndisleg hjá okkur þó það sé nú ekki hægt að neita því að maður hafi saknað Evu Maríu.  Annars voru Unnur og Gullý hér og svo mamma.  Thomas hennar Unnar kom svo á milli jóla og áramóta - gaman að kynnast honum.  Jóladagsboðið okkar hefur líka heldur betur breyst frá því sem var, það vantar heila fjölskyldu það er að segja Dóru og co.  Annars er alveg yndislegt að fá Gísla og Línu í heimsókn, það er bara svo allt of sjaldan sem við hittumst eins og er nú stutt á milli okkar.  Maður fer bara aldrei neitt i heimsókn og er það alveg synd.

Nú byrjar líka sagan af fiskeldinu okkar - við fengum búr hjá Sigga mági, loksins alvöru búr, var búin að vera með lítið plastbúr án dælu og alls.  Við fórum í Fiskó og keyptum 4 fiska, plöntu og síur í dæluna.  Keyrðum með þetta heim full eftivæntingar og Amalía var yfir sig hrifin þegar hún sá hvað við vorum með í pokahorninu þegar við komum að sækja hana.  Fiskarnir voru settir í búrið og byrjað að fóðra þá því þeir eiga að geta stækkað.  Það liðu kannski 5 dagar þá allt í einu fóru að koma stærðarinnar mygluflygsur upp í dæluna og svo varð þetta meira og meira.  Fiskarnir voru byrjaðir að stækka fannst okkur en nú byrjuðu þeir bara að drepast einn af öðrum, ömurlegt vesen.  Það virkar svo einfalt eitthvað að vera með fiska, við erum nú fyrir með fugla, hunda og hesta svo þetta átti bara að vera létt viðbót.  Eftir fyrirspurnir á netinu komumst við að því að víð værum aðeins of dugleg að fóðra svo það var ástæðan fyrir myglunni.  Auk þess kom upp hvítblettaveiki i búrinu, vesen, vesen.  Gullý fór suður 29 des og keypti hún þá nýtt fóður ef það væri nú eitthvað eitrað og 3 nýja fiska + 3 pínu litla (2 dóu á leiðinni hingað).  Ég druslaðist með búrið inn á bað og þreif alla myglu burt skolaði og skolaði og fiskarnir sem Gullý keypti settir í búrið + einn eftirlifandi sverðdragakerling.  Ég ætlaði að skýra hana seig því hún lifði þetta allt saman af en þá dó hún.  Hvítblettaveikin kom upp aftur og búrið var saltað aftur - ég fór svo suður 5 jan (keyrði Unni og Thomasi í flug og mömmu heim) og keypti þá lyf við þessari veiki eina sverðdragakerlingu og 5 pínulitla sjálflýsandi eins og við áttum fyrst og eiga víst að geta lifað með þessum sem við eigum Skalla og sverðdraga.  Jæja enginn hefur dáið af þessum stóru en þessir stóru borða þessa litlu eða Skalli borðar þá, það er bara einn eftir greyið hann verður líklega líka borðaður einhverntíma.  Við kaupum allavega ekki fleiri svoleiðis.  Nú eigum við semsagt sverðdragapar, einn Skalla og eina ryksugu og virðast þau öll við góða fiskaheilsu.  Vona nú að þetta fari að ganga betur.  Peran fór að vísu í ljósinu svo það var svolítið dimmt hjá þeim um tíma en nú er komin ný pera svo það er bjart hjá þeim núna.  Búið er að bæta við einum Skalla sem er hvítur að svartur - flottur.  Þetta virðist ætla að ganga upp núna :d

 Ég lét hafa mig út í það á haustdögum að fara í leiklestrarhóp, svona hópur af konum sem ætluðu að lesa leikrit, sitja í kringum borð og lest og hlægja voða gaman.  Nú er svo komið að við erum farin að æfa upp á sviði í Ungó og ætlum að frumsýna Skuggabjörgu þann 12 febrúar.  Svona vefja hlutirnir upp á sig, nú eru stífar æfingar og ekki veitir af.  Þetta er svo sem bara gaman en ég veit ekki alveg hvernig þetta verður ef það koma einhverjir áheyrendur/horfendur. :$

Annars er lífið komið í rútinu, ég hef farið í hesthúsið 6:30 á morgnana og gefið, kem svo heim og elda graut og ræsi krúttin mín tvö heima.  Nú breutist þetta reyndar því Bergljót er búin að taka á hús og þá förum við að skiptast á með að fara í morgnana - ég fæ þá að sofa lengur stundum.  Eftir vinnu er það hesthúsið aftur en það er allt of sjaldan sem maður gefur sér tíma til að fara á hestbak - það er alveg merkilegt hvað alltaf fellur eitthvað til og enginn tími í þetta eða hitt.  Amalía er ekki eins dugleg að fara með mér eins og í fyrra.  Hún er reyndar að byrja á reiðnámskeið á laugardaginn og eiga það að vera reglulegir tímar í vetur fyrir krakkana.  Svo eru nú Knapamerin að byrja aftur og stefni ég á að fara í númer 3 ef allt gengur upp.  Það er mjög gaman.  ;)

Við fórum á Þorrablót í sveitinni, Svarfaðardal í boða Búrfellshjóna á Bóndadaginn og var það alveg snilld, yndislegur matur, frábær annáll, og góður drykkur.  Ekki var leiðinlegra að dansa á eftir maður var bara á gólfinu í snúnig það sem eftir lifði kvölds.  Er að fara á Dalbæjarþorrablót um helgina sem verður eflaust fjör líka.

Ég er að hugsa um að láta þetta blogg duga, þetta er svona það helsta sem ég man eftir í bili, við erum hress á nýju ári og reynum að halda bjartsýninni.  Reyni að láta ekki líða alveg svona langt næst það er svo erftt að spá í hvað maður ætti að skrifa.

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 22:13:47 / Hósa

Restin af nóvember

Já svei mér þá, þá er nóvember bara búinn - síðasti dagurinn í dag.  Seinni helmingur mánaðarins hefur verið heldur rólegri í skemmtanalífinu Guði sé lof fyrir það, ég var að verða þreytt á öllum þessum skemmtunum.  Nóg um það. 
Í síðustu viku fór ég á ráðstefnu á vegum heilsugæslu ungbarnaverndar, þetta var í Borginni og var þetta mjög fínt - gagnlegt fannst mér og alltaf gaman að hitta fólk sem er að vinna með sömu hluti og maður sjálfur.  Ég gisti eina nótt hjá múttu, hún var bara brött, Dóra og fam komu og borðuðu með okkur í samskotamáltíð. 
Ég flaug svo heim á föstudag og þá um kvöldið bauð Bjarnveig til jólahlaðborðs sem líka var innflutningspartý í nýja húsið.  Þetta var svaka veisla og mjög góð mæting af vinnufélögum, nokkrir makar mættu svo á svæðið upp úr 23 en þá voru þeir velkomnir.  Restin af helginni fór í rólegheit. 
Nú við erum tveim bílum færri hér en Gullý varð fyrir því óhappi að klessa Evu bíl, hann verður borgaður út, borgar sig ekki að gera við hann.  Gullý slapp algerlega og er það að sjálfsögðu það sem skiptir mestu máli. Mér finnst eiginlega merkilegt að hún skildi sleppa svona alveg en frábært.   Nú hinn bíllinn sem fór var nú bara skemmtileg ánægja, hann á nú að flytjast alla leið til Afríku greyið.  Þetta er náttúrulega gamli LandCruserinn, eða hestabíllinn eins og við kölluðum hann oftast, hann var búinn að þjóna vel og ekki að hafa fyrir því að bila eins og þetta nýja dót.  Fyrir hann fékkst 500 Evrur og eru þær geymdar undir koddanum til erfiðara tíma þegar krónan fer á flot eða eitthvað.  Það besta var nú að losna við að reka bíl sem er svona lítið notaður og frábært að fá smá fyrir hann.  Við förum samt í að finna nýjan Evubíl sem Gullý verður á þangað til Eva kemur. 
Nú er Júlli á Sauðárkrók á brunavarnarnámskeiði og er búinn að vera frá föstudegi og kemur heim á morgun.  Ég var nú svolítið fúl að það skyldi hittast svona á að hann þurfti að fara á föstudegi því við áttum að fara á dansslútt eftir námskeiðið í Laugaborg með fullt af dansfólki. Ég nennti nú ekki að fara ein í svoleiðis svo ég sat náttúrulega bara heima í fýlu.  Nei, nei ég er á bakvaktinni á Dalbæ núna þessa helgi og er alveg nóg að snúast í sambandi við það.  Ég er svo búin að vera að dunda við að hengja upp jólaljós í glugga, og þrýfa gluggana fyrst.  Þetta er alveg að hafast en gluggarnir eru nú bara þónokkuð margir hér í Sunnuhvoli - ég sé það alltaf fyrir jólin.  Ég hlakka til að kveikja á þessu öllu saman á morgun en það er svei mér þá fyrsti í aðventu á morgun.
Tíminn þýtur áfram, börnin stækka og þroskast og áður en við vitum verður þetta allt orðið fullorðið fólk.  En mikið afskaplega fékk ég fallegt kort í gær í póstinum frá Pennsyvania.  Þetta var frá fjölskyldu Evu Maríu og féllu mörg falleg orð um hana, og þau þökkuðu okkur fyrir að deila henni með okkur, litla stóra jálvæða Eva María - já móðurhjartað fylltist stolti og laust við að það dyttu nokkur tár.  Gaman að því.
Segi þetta gott í bili, nýtt blogg í des ef tími vinnst til, það fer allt að verða brjálað í jólaundirbúinig hó hó hó  :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 23:40:06 / Hósa

Nóvember hálfnaður!

Já jólin verða hér áður en við vitum af og jafnvel búin áður en við vitum af.  :$
Fyrstu helgina í nóvember fórum við hjónin til Húsavíkur á Helku söngmót sem karlkórinn tók þátt í.  Það var alveg meiriháttar gaman af því.  Það var lagt af stað snemma á laugardagsmorguninn, við vöknuðum fyrir 7 græjuðum okkur til, vöfðum Amalíu inn í teppi - fórum með hana til Herborgar, Tanja að passa og svo upp í kirkju þar sem rútan beið okkar og brunaði með okkur til Húsavíkur.  Við máttum nú ekki seinni vera, þeir áttu að fara að æfa og við konurnar sem vorum með fórum í óvissuferð í boði þeirra á Húsavík. Byrjuðum að skoða kirkjuna og fá aðeins sögu af henni, mjög sérstök og falleg kirkja.  Svo var farið í Hvalasafnið sem er alveg svaka flott en maður verður nú eiginlega að fara þangað seinna í rólegheitum - maður gat bara skoðað þetta á hundavaði þarna.  Smá tími var gefinn til að skoða í búðir og eitthvað var verslað - ég keypti lítinn steinkarl handa Amalíu voða sætann.  Við enduðum á sláturhúsinu ekki þó til að láta slátra okkur, heldur var okkur boðið þar í mat, æðisleg kjötsúpa og flotterí.  Fengum disk kórsins á Húsavík að gjöf og ilmvatnsprufu.  Eftir þetta fengum við að hitta karlanna okkar sem höfðu verið í stífum æfingabúðum meðan við vorum að skemmta okkur - já lífið er ekki alltaf réttlátt.  Tónleikar voru kl 17 og tókust mjög vel, þeir koma á diski fljótlega.  Eftir tónleika var öllum boðið í safnahúsið í boði sveitastjórnar (sveitastjóri er Bergur Elías Ágústsson, en hann var í Tromsö sömu ár og ég).  Sveitastjórinn heilsaði að sjálfsögðu upp á mig og ég mannglögga þurfti að horfa nokkrum sinnum á hann til að átta mig - ég er alveg ferleg.  Þessi stund í safnahúsinu var mjög skemmtileg - smáréttir og nóg vín í boði enda hresstust menn fljótt  ;)
Strax eftir þetta var farið að sameiginlegri máltíð, mjög fínn matur en skemmtiatriðin voru heldur löng og fólk alveg búið á því, ég var alveg að sofna ofan í diskinn - en þraukaði þó erfitt væri.  Rútan fór svo heim til Dalvíkur upp úr miðnætti, ég var nú hálf fúl að ná ekki neitt af ballinu, vildi endilega prófa öll danssporin sem eru nýlærð.  Einhverjir urðu eftir en ég vildi það ekki sem betur fer, daginn eftir - það var gott að vera komin heim þá.  Á sunnudeginum fórum við Amalía saman í sunnudagaskólann voða sprækar :)
Næsta vika leið hjá alveg á fullu eins og vant er.  Sumaklúbbur á mánudeginum ég lenti í símanum þegar ég var á leið að laumast út, var búin að semja við Amalíu að vera ein smá stund sofandi en ég fór ekki í klúbbinn fyrr en Júlli var kominn af fundi hjá kórnum.
Önnur helgin í nóvember: Dóra, Siggi og Kristjana mættu á svæðið, æðislegt að fá þau í heimsókn.  Þau komu seint á föstudagskvöldi - náðum samt smáspjalli þó minnið væri misjafnt hjá fólki daginn eftir um hvað talað hefði verið um -  hvað um það, það var nú ekki svo merkilegt en gaman var það.  Amalia og Kristjana sofnuðu í faðmlögum fyrir framan sjónvarpið voða sætar.  Þær ná alltaf jafn vel saman.
Júlli fór í afmælisveislu til Bjarna á Völlum á laugardagskvöldinu en ég var bara heima hjá gestunum og var það voða huggulegt.  Þeir komu svo nokkrir karlar með Júlla hingað heim eftir afmæli og sungu ægifagurt fyrir okkur og Siggi með þeim og var ákveðið að hann gengi í kórinn í hvelli - gæti bara keyrt á milli á æfingar.  
Dóra og Siggi fóru svo um miðjann dag á sunnudag með næstum tvö úrbeinuð folöld 40% léttari en þegar þau komu.   Æðislegt að fá þau í heimsókn og vildi ég að við gætum hist oftar en svona er þetta nú.
Ég átti svo afmæli þann 10 nóvember, var heima þann dag, ekki vegna þess að ég ætti afmæli heldur vegna þess að það var starfsdagur kennara og Amalía heima.  Ég fékk mikið að kveðjum næstum eins og þetta væri merkisafmæli sem ekki var nú.  Við Júlli fórum til Akureyrar eftir hádegi og fór ég í ZicZac og valdi þar á mig þrjár flíkur í afmælisgjöf frá bóndanum- flott, flott.
Mér bauðst á dögunum að koma í leiklestrarhóp, nú og ég hugsaði þvi ekki að prófa það, alltaf til í að prófa eitthvað nýtt.  Búin að mæta einu sinni ég held að þetta verði bara gaman, segi meira frá því seinna þegar ég veit meira hverning þetta verður.
Í gærkvöldi fór ég á Kósýkvöld hjá slysavarnakonum, það var borðað hjá Gústa við Höfnina svaka góður matur og eftir mat var kynning frá Adam og Evu, já það er ýmislegt til ég segi ekki annað.   Þetta var mjög hugguleg stund en ég var nú frekar þreytt og fór heim um miðnætti og kúra.  Gullý var að passa, Júlli fór fyrst í að gera við þurrkurnar á Boruni svo fór hann út í hesthús að smíða grindur.  Við Gullý vorum í hesthúsinu í allann dag að mála og er farið að sjá fyrir endann á því, gátum ekki klárað því það vantaði málningu.  Júlli skapp í Hóla með kunningjum að ná í tryppi sem höfðu verið þar í tamningu  meðal annars Hljómur hans Gumma.
Við Júlli vorum annars í Skagafirði í gær að ná í folaldakjöt, það var nú bara leiðindaveður þar alveg ótrúlegt að taka svona á móti manni, þ e veðrið.  Við komum við í Sunnuhvoli í góðar móttökur, hittum á Bryndísi og Bjarna, alltaf notalegt að koma þar þó sjaldan sé - einu sinni á ári.  Jóhann á Silfrarstöðum kom þar ég hef nú bara ekki séð henn í 20 ár held ég.
Eitt enn sem ég gerði í nóvember.  Ég fór á skyggninlýsingarfund, fékk kveðju frá Sigga heitnum mági mínum, hann var ánægður með að hrossin hans væru í góðum höndum og var bara gott að heyra það.  Ég átti nú von á að heyra í ýmsum en ekki honum svo hann kom mér á óvart enda mikið fyrir það koma fólki á óvart.  Ótrúlegt sem þetta er en hvað á maður að gera annað en að trúa þessu, ég get ekki annað, hverjum ætti að detta í hug að búa svona til - engum.  Segi þetta gott í bili, gangið á Guðs vegum, ekki veitir af í kreppunni. 

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 22:29:42 / Hósa

Óvissuferð í heimabyggð

Það er alltaf svo gaman að fara í óvissuferð í heimabyggð.  Maður fer á staði sem maður þekkir en stundum er langt síðan maður hefur farið þangað.
Allavega -  á föstudaginn hittumst við konur slökkviliðsstjóra í rútu við hótel Sóley og var fyrst farið í Siggu-búð, Stjörnuna, að skoða glerið þeirra - alveg æðislega flott, langt síðan ég hef komið þangað og skoðað.  Ég fer þangað eitthvað aftur fyrir jól. Ég náttúrulega keypti ekki neitt, var ekki einu sinni með pening.  :$
Þegar konurnar voru búnar að eyða smá var aðeins rúntað um bæinn til að reyna að sýna gestunum bæinn en það var bara verst að það sást ekkert nema hríð.  Það var eiginlega alveg vitlaust verður eða allavega mjög lélegt skyggni.  Næst var brunað inn á Strönd eða á Hauganes til Elvars í Ektafiski.  Hann tók nátturulega vel á móti okkur konunum með faðmlögun og snaps.  Hann sagði okkur saltfisksöguna og sýndi okkur hvernig á að handflaka og fletja úr fisk.  Við vorum allar leystar út með Gullkistuna og flestar voru farnar að finna fyrir öðrum fætinum.  Skemmtileg heimsókn :haha:
Það var svo bara farið heim á hótel eftir þetta, ég fór bara heim í Sunnuhvol og hafði það huggulegt með Gullý og Amalíu.  Það var voða notalegt að eyða föstudagskvöldi heima.  Á laugardagsmorgun tók ég smá rispu í að þrífa.  Júlli kom svo heim af fundi um 13:00, smá afslöppun fyrir næstu óvissuferð.  Klukkan 14:30 var haldið frá hótel Sóley í rútu á nýjann leik, þá bæði konur og karlar.  Það var bara ein gata í bænum fær, gatan í gegnum bæinn svo hún var keyrð fram og tilbaka nokkrum sinnum, útsýnið var ekkert sérstakt, ennþá hríð.  8|
Þvínæst var farið í Kalda, alltaf jafn gaman að koma þangað.  Þetta er bara einfaldlega uppáhaldsbjórinn minn.  Þar var stoppað í rúman klukkutíma svaka stuð, þá mætti nýr hópur svo við urðum að fara, nei, nei við áttum ekkert að vera lengur. :p  Næst var farið á Byggðasafnið og það var æði að koma þangað, ég hef ekki komið þangað í mörg ár.  Þessi óvissuferð endaði á slökkvistöðinni það sem Nafni og strákarnir voru búnir að dekka upp með bjór, ostum og snakki.  Þar fengu karlarnir að skoða aðstöðuna hér á Dalvík og að sjálfsögðu bílanna (konurnar máttu líka skoða ef þær vildu).  Þarna var stoppað dágóða stund og fólk sagði sögur og brandara og voru margar sögur af Sigurði "syni mínum". :haha:
Heim í sturtu og í fínu fötin - mætt í fordrykk um 20, svaka flottur 3 rétta matur frá Veisluþjónustu Akureyrar - rann mjög ljúflega niður.  Addi Sím veislustjóri, hann og hans flygifiskar svíkja engann.  Eftir allt saman var ball og gekk okkur hjónum alveg prýðilega að nota sporin sem við erum að læra á sunnudögum.  Nú svo var allt saman búið of snemma að okkur fannst svo við fórum í Bárubúð á eftir og enduðum með partý hér til að verða 6, það er náttúrulega alger vitleysa að halda svo lengi áfram - bara til að eyðileggja daginn eftir.  Að maður skuli aldrei læra kominn á þennann aldur. :$
Á sunnudagshádegi drattaðist ég á fætur og labbaði með hundanna upp í kirkju til að ná í Amalía sem var í sunnudagsskóla með Dagbjörtu.  Ég hafði eiginlega hugsað mér að mæta í skólann en það var svo voða erfitt að fara á fætur.  :( Jæja en það var allavega allt á kafi í snjó og þurfti ég að byrja á því að moka hudanna út úr bílskúrunum þegar ég kom á fætur.  Maður hressist bara á því. ;)
Sunnudagurinn leið hjá, einhver þvottur, Amalía að lesa og æfa á píanó.  Steinunn var hér að leika við hana part úr degi.  Um kvöldið fórum við svo í dansinn - þetta er alltaf jafn gaman og nú var verið að stinga uppá að við tækjum frá 28 nóv og færum á ball allur hópurinn á Akureyri og hittum fólk sem er líka að læra að dansa.  Það verður örugglega svaka gaman,  tökum rútu og allar græjur. ;)
Nú er mikið að gera í vinnunni, það er að sjálfsögðu verið að reyna að spara með því að taka ekki inn aukavaktir og ef eru veikindi er bara reynt að redda með minni mannskap.  Það hefur bara gengið vel að redda þessa tvo daga.  Ég hef verið inn á gangi og er það mjög gaman að komast aðeins í aðhlynningu frá skrifstofunni.  Mikið öðruvísi en gaman og mjög gott fyrir mig sem stjórnanda.  Heilsugæslann á morgun, nú er verið að sprauta flensubólusetningu.  Setti inn nokkrar myndir af október ef þið viljið sjá snjóinn og part af dýrunum mínum.  Er annars farinn að hafa talsverðar áhyggjur af greyunum i Sauðanesi.  Júlli er núna út í hesthúsi að byrja að undirbúa fyrir málningu svo ég geti farið að vinna í þessu.  Við verðum að fara að verða tilbúin að taka inn - það gæti komin fyrirskipun um það allt í einu, vona samt ekki.  Snjórinn á að fara aftur er spáð.  Sjáum hvað setur.

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 23:26:45 / Hósa

Tími kominn á nýtt blogg

Tíminn líður svo sannarlega hratt.  Vinnuvikurnar þjóta áfram og helgarnar eru allar fullbókaðar - það er nú meira hvað tínist alltaf til af skemmtunum og þess háttar :$
Þann 10. október á föstudegi lögðum við Júlli land undir fót og brugðum okkur í Mývatssveit, hótel Reynihlíð nánar tiltekið.  Við fórum semsagt í brúðkaupsferð - vorum að taka út gjafabréf.  Þetta var alveg meiriháttar helgi sem við áttum þarna svona nýgift. :haha:   Föstudagskvöldið var náttúrulega bara rólegheit enda komum við seint á staðinn, maður er svo búin á því á föstudögum eftir vinnuvikuna að maður bara lippast útaf um leið og slakað er á.  Fórum svo seint á fætur því það var búið að segja að við þyrftum ekkert að flýta okkur í morgunmat - morgunmatur og hádegismatur næði saman og vorum við velkomin í hvað sem var.  Við náttúrulega sátum í klukkutíma og borðuðum, Júlli smakkaði grasysting (hann fékk sér á disk eftir mínum fyrirmælum), ég smakkaði eina skeið en hann sat uppi með restina og kláraði.  Þetta var nú bara gott en hefur ekki akkúrat útlitið með sér.  Ég fékk mér bara gamla góða grjónagrautinn.  Nú svo fórum við í smá skoðunarferð um Mýatssveitina, upprifjun á hestaferð í fyrrasumar, gönguferð í Dimmuborgir og enduðum svo í Jarðböðunum sem var voða notalegt.  8) Það var svo mæting í fordrykk kl 19 á hótelinu en við lentum í þvílíku haustveislunni þarna - fleiri fleiri réttir og vín að vild með.  Þetta var alveg svakalega flott og meiri háttar góður matur og vínin öll.  Eftir mat var svo ball - voða stuð.  Við ætluðum að fara að dansa þessa fínu dansa sem við höfum verið að læra í dansskólanum en það gekk ekkert of vel.  Bæði farin að finna í annari tánni, Júlli er bara búinn að læra að hann á að stjórna í dansinum en er ekki alveg klár á sporunum og ef sporin eru ekki rétt að mínum dómi þá læt ég nú líklega ekki af stjórn.  Nei þessi dansspor verða að æfast aðeins betur áður en maður fer að dansa þau á skemmtunum.  Skrítið hvað þetta er allt mikið erfiðara þegar Inga Magga er ekki til að telja í.  Verst ef maður verður alltaf að hafa hana með til að telja.  :s  Nóg um það helgin var alveg æðisleg og vorum við komin heim nokkuð snemma á sunnudeginum.  Komum að vísu aðeins við hjá Gísla bróðir en ég hafði ekki séð þau síðan á Fiskidag þó svo að það séu ekki meira en 50 km á milli okkar.  Svona er maður upptekinn.  Gaman að hitta þau.  :)
Nú ný vinnuvika leið hjá.  Menningarklúbbur hjá Kötu á miðvikudeginum, ég kíkkaði aðeins þegar Júlli var kominn heim af kóræfingu.  Alltaf gaman að hitta skvísurnar og spjalla frjálslega.  :!:
Helgin 18-19 okt.  Óvissuferð á Heilsugæslunni.  Það var búinn að vera undirbúningur í vikunni - við sem ekki vorum í nefndinni saumuðum Tírolabúning - meiriháttarflott.  Ásrún bara klippti þetta til eftir auganu og við reyndum að koma þessu saman eftir hennar leiðbeiningum.  Þetta var svaka fjör meðan við vorum að þessu.  Nú við vorum sóttar heim til okkar kl 10:30 á laugardagsmorgni, ég var náttúrulega alveg á síðast snúning að klára að pakka og Amalía missti tönn, framtönn uppi, blóð og læti.  Þetta var næstun búið að lenda í stressi en slapp til.  Guðmundur Páls og Aníta voru óvissunefndin sem eftir var, tveir gáfust upp.  Fyrst var brunað upp á Heilsugæslu og þar var Inga danskennari sem  kenndi okkur grunn í línudansi og fleiri spor, meiriháttar gaman.  Þvínæst var farið heim til óvissuhjónana og boðið upp á osta og rauðvín ásamt andlits og handamaska, meiriháttar notó.   Þaðan var farið á "Við höfnina" nýja staðinn hér, þar sem gamla Bakaríið var.  Þar var boðið upp á súpu og ýmislegt meðlæti og brauð og að sjálfsögðu rauðvín.  Rjómaslumma á eftir og kaffi og konni.  Maður var nú eiginlega alveg afvalta eftir þetta og bara svona mátulega mjúkur.  Upp í bíl og inn á Akureyri, allir í Keilu.  Eftir Keiluna var svo brunað á Hótel Sveinbjarnargerði og þar áttum við að fá hver sitt herbergi en við vildum bara vera saman svo það voru 2 og 3 saman inn á parýgangi var okkur sagt.  Allir drifu sig í pottinn sem var nú nokkuð sleipur hér og þar svo það var eins gott að fara í góða sturtu á eftir.  Sturtan hjá okkur var svo heit að það var nú bara heppilegt að maður losnaði ekki frá beinum - það var eins og væri ekkert kalt vatn.  Helv. heitt var að skola sjampóið úr hárinum.  Lifðum það af sem betur fer.  Svo var bara að skella sér í búningana - ljósgræn peysa (skelfilegur litur) og dökkgrænar stuttbuxur með böndum og svartur hattur með ljósgrænum borða hringinn og 2 fjaðrir.  Hattinn vorum við að vísu búnar að vera með allann daginn.  Guðmundur og Aníta trúðu ekki eigin augum þegar við komum fram og allavega ekki að við höfðum saumað þessa búninga bara fyrir þetta.  Þeim fannst þetta alveg æði.  Þau nefnilega auglýstu ferðina þannig eins og við værum að fara til Týrol og það var mynd af týrolagæa og þau sögðu að við yrðum að vera með hatt með fjöður.  Málið var bara að við gengum aðeins lengra og fórum í allann búninginn, ekki bara hattinn.  Það var þarna haustveisla með þýsku ívafi, svaka góður matur og skemmtileg kvöldstund eins og mamma segir.  Það var þarna nokkrar kvennsur úr kvenfélagi og svo við.  Þær voru náttúrulega teknar með í þá samkvæmisleiki sem við fórum í þarna.  Þær drifu sig svo til Akureyrar, ætluðu á ball með Geimundi.  Við af heilsunni spiluðum og fórum í leiki eitthvað frameftir en farið á kristilegum tíma að sofa.  Komum heim um 14 á sunnudeginum. ;)  :p
Ný vinnuvika sem er reyndar að klárast á morgun.  Í kvöld var haustfagnaður á Dalbæ og skruppum við Amalía aðeins til að sýna okkur og sjá aðra.  Alltaf gaman að koma svona á Dalbæ þegar uppákomur eru, allir svo fínir og ánægðir - brosað hringinn.  Við vorum svo komnar heim um 21:30 svo ég veit um eina sem verður mjög þreytt á morgun.
Já Gullý orðin 17 ára litla stelpan mín og komin með bílpróf.  Við Júlli skruppum inn á Akureyri á þriðjudaginn með bílinn hennar "Evu Maríu" en Gullý verður með hann í vetur.  Það var svo mikill spenningur að byrja að keyra, hana langaði að hafa hann klárann hjá sér á afmælisdaginn svo hún gæti rúntað þá.    Gaf henni úlpu á afmælisgjöf eða það sem eftir var af henni þegar hún var búin að nota gjafabéfið sem hún átti í 66°.  Henni verður vonandi ekki kalt í þessari dýrindis úlpu, úlpan er bæði hlý og flott finnst mér.  Annars er hún á leið til Tenerífe eftir helgina í viku - það verður gaman.  8)
Júlli er að fara á slökkviliðsstjóraþing um helgina sem verður haldið hér á Dalvík og er líka eitthvað stuð fyrir makana svo maður situr líklega ekki aðgerðalaus þessa helgina frekar en vant er.  Óvissuferð á morgun - stuð stuð.  :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 21:50:15 / Hósa

Kreppa

Já það er það sem maður heyrir í öllum fréttum og öðru umtali.  Maður veit varla hverning maður á að haga sér en líklega er best að fara engu óðslega og reyna að spara :$
Af okkur sjálfum er annars allt gott að frétta.  Við fórum á Laufskálaréttardjamm og var alveg æðislegt.  Sýningin á Króknum á föstudagskvöldið var nú samt sú daprasta í sögunni finnst mér.  Það er verið að reyna að fá góða skemmtikrafta þarna - Laddi var núna og Laddi er æðislegur en á svona skemmtun finnst mér eiginlega bara synd.  Allir orðnir hífaðir og nenna ekki að hlusta á brandara, auk þess sem hljóðið var allt annað en gott og það þurfti virkilega að hlusta til að heyra eitthvað.  Ég hálf vorkenndi honum að standa í því að reyna að skemmta fullum Skagfirðingum og gestum þeirra.  Nóg um það.  Ég fékk mér svo aðeins í tánna þegar í Víðimel var komið en ég var búin að vera bílstjóri fram að því.  Laugardagsmorgun reis bjartur og fagur og við brunuðum í réttina, að þessu sinni var Júlli bílstjóri (ég held í fyrsta skipti á réttinni og ég held það síðasta).  Ég allavega skemmti mér alveg konunglega og komst í þvílíka stuðið en það versta var að einhver flensa gerði vart við sig á leiðinni heim - skil ekkert í því en maður á náttúrulega aldrei að fara í bíltúr þegar komið er í báðar tærnar.  Nóg um það ég hvíldi mig og náði að komast í svaka stuð aftur að kvöldi á Víðimel.  Það voru allir svo ánægðir þegar ég reis aftur (frændfólkið frá Viðimel) að ég var farin að halda að ég hefði risið frá dauðum.  Í heildina var þetta svaka fín helgi og æðislegt að hitta Dóru systir og hennar lið sem er svo allt allt of sjaldan.  :d
Vinnuvikan kom svo sem er svona vinna á Dalbæ mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga 8-15.  Þegar heim er komið er Amalía að bíða eftir mér og hún lærir þegar ég er komin heim, því stjórna ég með harðri hendi enda er hún bara orðin nokkuð stautfær í lestri og fer ört fram á píanó.  Á miðvikudögum fer Amalia í skólavistun til Hafdísar því þá er ég að vinna til 16. Nú þegar Amalía er búin að læra á daginn fer ég oft á göngu með hundanna, stundum fer Amalía með eða er að leika heima.  Restin af seinnipartarnir líða svo í heimilisstörfum, alltaf finnur maður allavega verkefni það er víst.  Nú er maður farinn að vaska upp í höndunum.  :whut:  Við fengum uppþvottavél sem átti að vera í toppstandi en gamla mín er nú ekki búin að vera upp á marga fiska lengi. En þessi nýja bara lak vatni út um allt gólf svo hún var borin út í snatri og það tekur því þá varla að fara að tengja hálfónýta vél aftur.  Sjáum til hvað verður.  Eitt kvöldið fór í að bera á garðhúsgöngin - ok þá eru þau klár í vor.  Júlli setti upp hillur í bílskúrnum.  En það er nú aldeilis verkefni að reyna að hreinsa gólfið í bílskúrnum, ég skil ekki allt þetta drasl sem við eigum, hvað er þetta eiginlega og hvaðan kemur þetta eiginlega.  8|
Um síðust helgi voru svo stóðréttir hér.  Það var nú meiri eymdin, það var svo slæm spá á föstudeginum svo það var ákveðið að smala fótgangandi á fimmtudeginum og hrossin geymd í hólfi við Stekkjarhús.  Einhverjir fóru nú þangað til að reyna að halda haus og fá sér eitthvað á föstudagskvöldinu og gistu eina nótt.  Hrossin voru svo rekin niður í rétt á BÍLUM, enginn maður sást ríðandi.  Þetta var allt eitthvað svo skrítið og öðruvísi.  Við fórum samt og sáum að Hjálmar hafði skilað sér, laglegasta tryppi held ég bara.  Nú maður fékk sér kaffi og meðlæti hjá kvenfélaginu að sveitasið.  Þegar heim kom fór ég á göngu með hundanna, fór svo að ganga frá trampólíninu í vetrarstað en það var alltaf eftir.  Þegar þessu öllu var lokið var ég bara dösuð og langaði mest að dorma fyrir framan sjónvarpið í staðin fyrir að fara á stóðréttarball og Júlli var alveg sama sinnis svo það varð úr.  Við höfum sem sagt róast mikið eftir að við giftum okkur eða eitthvað er það.  ;)
Nú er bara ný vinnuvika og allt gengur sinn vanagang.  Júlli orðinn það góður að ég er hætt að sjá hann.  Hann fór núna strax eftir vinnu að hjálpa veislustjórunum okkar í nýja húsinu, kom heim og skipti um föt og fór á kóræfingu.  Veit ekki hvort er betra að hafa hann veikann eða aldrei heima???
Segi þetta gott í bili, kveðja til ykkar allra Hósa

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 22:36:12 / Hósa

vikublogg

Já það er vika síðan síðast.  Um síðust helgi var ég eiginlega búin að ákveða að gera ekkert en það var nú fljótt að breytast því það var óvissuferð með Dalbæ og ekkert annað í stöðunni en að skella sér.  Ég var í voða hreingerningarstuði á laugardagsmorguninn, tók í gegn hér heima og var ekki vanþörf á.  Óvissuferðin byrjaði svo upp á Dalbæ kl 16, þetta var meiriháttar gaman frá upphafi til enda. Það var brunað inn á Akureyri og allir í bílabíngó á leiðinni.  Við fórum í Keilu - ég og Magdalena urðum keilumeistarar með 114 stig.  Eftir keiluna fórum við svo í pottinn í Átak um 20 kellur í einum litlum potti þið getið rétt ímyndið ykkur. Svo var endað á staðnum við höfnina á Dalvík hjá Gústa - meiriháttar matur svo eftir matinn var dansað við ABBA þvílíka stuðið. :haha:   Ég var samt komin heim um 23 sem betur fer kannski því ég þurfti að mæta í vinnu kl 8 um morguninn, ég var nefnilega á bakvakt.  :$
Á sunnudagsmorgun var ég sem sagt að vinna, Amalía fór í fyrsta sunnudagsskólann með Friðriku og var svo í heimsókn hjá Lovísu fram eftir degi.  Við Júlli fórum svo að dansa um kvöldið æðislega gaman.
Á mánudagskvöld var saumaklúbbur hjá mér alltaf gaman að hitta þær stöllur og spjalla um heima og geyma.  ;)
Ég er búin að vera í fríi í dag og er í fríi á morgun.  Fór í fataskápa og er búin að fylla 2 svarta ruslapoka sem fara í Rauða krossinn.  Á morgun á Júlli að fara í tékk eftir hryggbrotið og förum við svo beint frá Akureyri í Skagafjörðinn í Laufskálaréttardjamm.  Við förum bara tvö héðan þetta árið, Amalía verður hjá Herborgu og Gullý nennir ekki að vera "ein" með okkur.  Segjum þetta nóg í bili.  Góða helgi

» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 18:02:12 / Hósa

Trampólínið komið inn.

Já það er orðið svo vindasamt hér og spáð roki svo ég tók mig til og pakkaði tramólíninu niður.  Það er líklega haustmerki - það er stutt á milli, búið að vera upp í 20 stiga hita svo bara snöggkólnar og á jafnvel að koma slydda. 
Ég var annars á fræðsluerindum í Akureyri í morgun meðal annars um sálgæslu aldraðra og fleira - mjög áhugavert svo það var ekki venjuleg vinna í dag.  Notaði tækifærið og verslaði í leiðinni í uppáhaldsbúðinni Bónus.
Heyrði í Evu í gær og er hún bara mjög ánægð með sig - búin að blogga eitt blogg frá Ameríku - það er flott þegar vel gengur.  Unnur er líka ánægð með sig, alltaf á fullu.  
jæja læt þetta duga og vona að það verði ekki alltof mikið úr þessu roki en svona er þetta nú oft á haustin. 

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 22:07:12 / Hósa

Göngum lokið.

Jæja þá er ég búin að fara í þær göngur sem ég ætla að fara í þetta haustið. Ég var á ísbjarnarslóðum um helgina í alveg meiri háttar veðri.  Við fundum nú frekar lítið af kindum enda voru þetta aðrar göngur og smalaðist mjög vel helgina áður svo flestar kindur voru búnar að skila sér.  Í staðinn var þetta bara þessi fíni reiðtúr í flottu veðri og frábæru útsýni.  Restin af helginni var mjög fín ég komst aðeins í sláturtíð, fékk að rifja upp gamla takta - klippa og svíða svið og eitthvað svona dund alveg æði. :d
Júlli greyið var að snubla þarna í kring en hann þreytist voða fljótt svo hann er nú ekki til stóræðana.  Hann fór samt í vinnu í dag en varð að fá að fara fyrr heim alveg búinn á því.  :(
Reyndar fórum við á dansnámskeið í gærkvöldi en þetta var fyrsti tími af 8 tímum - alveg svaka gaman en maður var alveg búin á því við vorum bæði kófsveitt - kannski full mikið fyrir Júlla en hann lét sig hafa það, við erum búin að vera á leiðinni á dansnámskeið lengi og það er ekki haldið svo oft hér svo það var þá bara að skella sér þó heilsan væri ekki alveg upp á það besta.  Gaman var þetta allavega.  :þ
Vinnuvikan svo byrjuð aftur - ég er voða þreytt svona í upphafi viku enda kannski ekki verið sérlega mikill svefn yfir helgina - líklega best að koma sér snemma í rúmið.  Ég var eiginlega að fara að undibúa sauma/menningarklúbb í kvöld sem ég ætlaði að halda á morgun en það var eiginlega misskilningur í mér hann á að vera í næstu viku.  Kíkkaði sem betur fer í póstinn áður en ég fór að stað með eitthvað bras.  En svona get ég verið klikk.   ;)
Segi þetta gott í bili kveðja Hósa

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 21:08:28 / Hósa

Ég er hetja

Já þetta segja þeir í auglýsingunum um þá sem gefa blóð en ég var að gefa blóð í dag í blóðbílnum - fyrsta skipti sem ég hef getað gefið blóð.  Fannst mér svima smá stund meðan á þessu stóð en svo er þetta bara búið að vera i góðu lagi.  :haha:
Göngurnar gengu nú ekki alveg eins og þær áttu að ganga að öllu leyti.  Veðrið er samt búið að vera alveg æðislegt alla helgina og er það reyndar ennþá.  En þegar við vorum að fara upp á Syðri-Holtsdal, vorum komin nokkuð hátt ég á Tinna og Júlli á Vökli (ég lánaði honum besta gæðinginn að því að ég hélt)  Jæja þeir voru svona að feta sig í stórþýfi og torfærum að Vökull fót kollhnýs með Júlla á baki sem endaði með því að Júlli steyptist á höfuðið - beint á hvirfilinn (var sem betur fer með hjálm).  Hann fann strax mikinn verk á milli herðablaða og missti andann en vildi þó bara reyna að ganga niður aftur - ekki láta fara að kalla á hjálp.  Hann fékk að ráða því þó það hafi náttúrulega ekki verið ráðlegt að láta hann ráða þessu.  Hann komst niður í rólegheitum og ég á eftir með hestanna tvo - við urðum náttúrulega bara að kveðja gangnamenn.  Það var svo brunað á Heilsugæslunna fyrst svo beint inn á FSA í rannsókn sem tók bara 6 - 7 tíma þvílík bið.  Eftir allar þessar rannsóknir vissum við það að Júlli fékk samfallsbrot á 4 og 5 brjóstlið svo það er ekkert annað en að taka því rólega og bryðja verkjalyf.  Alveg ferlegt.  :cry:
Við Gullý fórum í það eftir kvöldmat að keyra Vökli og Trítil í Búrfell og tókum reynda Akk líka frá Hreiðarstaðakoti því ekki var Júlli að fara í göngur.  Við Júlli skruppum svo aðeins til Halla Klaufa í blöndupartý um kvöldið svona rétt til að sjá liðið. 
Við Amalía fórum í göngur gangandi þar sem ég er vön að ganga svo við fórum snemma laugardagsmorgun með Kidda Hauks beint í Búrfell og gengum þaðan.  Við náðum að tína ber meðan við vorum að bíða í fyrirstöðunni - sú litla var ótrúlega dugleg að ganga.  Gullý fór aftur með reiðmönnum frá Hreiðarstaðakoti.  Júlli kom svo til réttar uppúr hádegi.  Upphófst svo fjörið á Búrfelli eins og vant er, ég náði að skreppa í fjós áður en riðið var niðureftir þó svo í týmdi varla að fara því að var alveg að fara að fæðast kálfur - sem svo fæddist seinna um kvöldið og hlaut nafnið Hósa flott það :d
Amalía reið áleiðis með okkur en þegar hún fór af fékk Erlingur lánaðann Trítil og var Erlingur á inniskónum og hafði síðast farið á bak 72, enda fannst honum Trítill mjög viljugur en þeim samdi nú bara vel.  :þ  Skáldalækjarpartý var flott að vanda og kjötsúpan aldeilis frábær.  ;)
Sunnudagur ennþá frábært veður, réttir.  Júlli stoppaði stutt, smá spjall, kaffi svo heim.  Gullý, Amalía og ég riðum heim ásamt fullt af fögru fylgdarliði.  Um kvöldið nennti ég ekki á gangnaball og er að í fyrsta skipti í nokkur ár sem ég ekki einu sinni nennti að kíkka - er maður að verða gamall eða hvað???  
Mánudagur:!:  Sumarfríið búið, aftur að vinna, svolítið erfitt en samt bara gott að sumu leyti.  Lífið fer aftur að fara í sínar föstu skorður sem er alltaf gott eftir svona óreglu.  Júlli verður heima allavega þessa viku, sjáum til hverning heilsast.  Segi þetta gott í bili

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 21:23:58 / Hósa

Göngur að bresta á !

Nú er verið að fara með hestanna í Hreiðarstaðarkot fyrir Teigargöngur.  Við Amalía fylgdum liðinu af stað og riðum að Tjörn en ákváðum þá að snúa og fara heim að sofa.  Amalía sem sagt komin í rúmið og held ég bara sofnuð eftir að hafa lesið 3 blaðsíður í fyrstu lestrarbókinni sem hún fékk í skólanum, þetta verður að vera regla á þessu þegar skólinn er byrjaður.  ;)
Annars er ég búin að vera úldin í dag og óttalega löt - dagurinn hefur bara farið í ekkert.  Bakaði bananabrauð og gerði sviðasultu og búið.  Á morgun erum við Júlli að fara upp á Syðri-Holts dal með Ingu og Tona í smalamennsku, mæting uppúr 8 í Syðra Holt svo það er eins gott að láta hendur standa fram úr ermum í fyrramálið - ég þarf svo að koma hesti fyrir mig í Búrfell til að ríða á laugardag, þetta er alveg heilmikið fjör í þessu.  Ég er bara held ég ekki alveg búin að átta mig á þessu að það sé komið haust, maður sér svo sem að það er farið að dimma ansi fljótt og snögglega.  Sumarið er bara allt of stutt á Íslandi, búið áður en maður veit af.  :$
Það kom upp sú gjeggaða hugmynd í matarklúbbnum að skella sér í Köben í julefrokost, nú svo var bara að hrökkva eða stökkva - það er búið að panta 4 des út og 8 des heim.  ég held að við séum alveg klikk, en þetta verður svaka gaman er ég viss um.  :þ
Segi þetta gott í bili - segi frá öllu þessu gangnastandi eftir helgi eða því sem ég man.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 17:01:10 / Hósa

Það er komin september 2008

Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt finnst mér.  Það hefur nú heilmikið gerst síðan ég bloggaði síðast.  Til dæmis er ég orðin FRÚ - brúðkaupið var 28. júní, séra Dalla gifti okkur og var mikið tilstand og frábær veisla undir stjórn Adda og Nonna og matur að hætti Gústa með aðstoð meðlima í matarklúbbnum Laufinu.  Þetta var alveg æðislegur dagur og ógleymanlegur.  :d :haha:
Við unnum svo í tvær vikur áður en haldið var í brúðkaupsferð sem var 2 vikna hestaferð með ferðaklúbbnum Hristingi.  Fyrst fórum við reyndar á ættarmót á Skóga undir Eyjafjöllum - bara rúntað hálfur hringurinn.  Hittum svo ferðafélagana í Dölunum.  Allar stelpurnar voru með fyrri vikuna en Eva María, Unnur og Amalía Nanna fóru heim seinni vikuna.  Amalía handleggsbrotnaði eftir fyrsta reiðdaginn hennar, var að leika sér í skíðavél sem var þarna sem við gistum og fór sem fór.  Það var búið um það á Búðardal og fór öll fjölskyldan með í þann leiðangur.  Hún var ósköp dugleg greyið.  Það var svo riðið á Kaldárbakka og þaðan út á Löngufjörur á Snæfellsnesi og var það alveg æðisleg upplifun - ótrúlegur staður, maður á eftir að fara þangað aftur.  Hestum var svo keyrt aftur á Kaldárbakka og þaðan riðið alla leið að Kolbeinsá í Hrútafirði með nokkra nátta stoppi margar fallegar fjallaleiðir.  Eitt er víst að það er mjög fallegt á Íslandi, við fengum gott veður næstum alla dagana og gott skyggni.  Maður kemur alveg endurnærður úr svona ferðum - ég vann svo í tvær vikur áður en ég tók restina af sumarfríinu.
Ég er búin að vera i fríi undanfarnar 3 vikur rúmlega svo það er heldur farið að styttast í að ég fari að vinna aftur.  Vinn á morgun á heilsunni svo hef ég frí í 2 daga svo er bara vinna aftur á fullu.  :$
Ég byrjaði sem sagt í fríi um Fiskidagshelgina - það var hér fullt af fólki að vanda og mikið stuð, spilað og sungið fram á morgun báða dagana.  Mest var verið úti enda gott veður þó golan væri ansi köld.  Dóra systir og Siggi komu þriðjudag fyrir Fiskidag og voru hér í svolítinn tíma og var alveg æði að hafa systir hjá sér í svona nokkra daga.  Fórum í berjamó og fleira.  ;)
Nú ég fór svo í að keyra stúlkunum mínum í flug á Keflavík fyrst Evu Maríu sem flaug til Bandaríkjana þann 13. ágúst og þar mun hún verða í rúma 10 mánuði í Pennsylvania.  Hún er sæl með sig og það er bara æðislegt - vona bara að allt gangi vel hjá henni.  Ég skaust svo aftur heim og nokkrum dögum síðar fórum við aftur til Keflavíkur þá með Unni sem fór til Tromsö þann 19. ágúst en hún er byrjuð á síðasta árinu í hjúkrun.  Stefnan er hjá okkur að fara að heimsækja hana þegar hún útskrifast í vor.  8)
Nú er sem sagt orðið fátt í kotinu og á svo sem enn eftir að fækka.  Gullý er ennþá heima - skólinn hjá henni byrjar 9. september eða þá er held ég setnigin.  Hún er ennþá að vinna í fiskinum.  Amalía Nanna er aftur á móti orðin skólastelpa, byrjuð í fyrsta bekk í Dalvíkurskóla og finnst henni alveg æðislegt.  Fyrsti skóladagurinn var á 6 ára afmælisdaginn enda var erfitt að sofna það kvöld. :$  þetta gekk samt allt vel bæði í skólanum og afmælisveislan á eftir.  Hún er svo búin að vera í stanslausum afmælisveislum síðan hún byrjaði á skólanum og er að fara í eina á morgun.
Við fórum fyrir tæpum 2 vikum í útilegu með pallhýsið sem við erum að kaupa af Balla í Vaglaskóg, eða Systragil hittum þar fullt af Dalvíkingum, Óggu og Eið - Kidda og Dísu - Óskar og Guðný, þetta var voða huggulegt og gaman að skreppa svona og gista eina nótt.  Það var nú hugmyndin að vera dugleg að fara í svona skreppitúra þegar við keyptum þessa græju. 
Um síðustu helgi fórum við svo á ísbjarnaslóðir út á Skaga það sem Jónas og Svava eiga bústað.   Var það matarklúbbsferð svo sannarlega því það var mikið borðað og reyndar líka drukkið svolítið með.  Þau fóru svo með okkur og sýndu merka staði.  Þessi ferð var alveg snilld nema endilega þurfti nú pústið á bínum að losna niður og fara í sundur svo það þarf eitthvað að skoða það fyrir næstu ferð.  :^)  Hávaðinn í bílnum var talsverður en nú er hann orðinn of mikill.
Læt ekki líða langt í næsta blogg enda mikið sem liggur fyrir á næstunni - bið ykkur vel að lifa kveðja Hósa

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 22:37:03 / Hósa

haustið 2007

Kannski ég skelli inn smá færslu, það er orðið svo langt síðan síðast. 

Mallorka var æðislegt, kannski svolítið heitt á köflum.  Mamma stóð sig eins og hetja, við örkuðum út um allt, hún alltaf með göngugrindina, svaka dugleg í yfir 30 stiga hita.  Annars höfðum við það líka rólegt slöppuðum af og leystum lífsgátuna á svölunum með gott í glasi.  Voða notalegt að fara svona mæðgnatúr í rólegheitum.8)

Unnur kom í heimsókn í lok september, voða gaman að sjá hana aðeins.  Við fórum þá í Laufskálarétt með öllu tilheyrandi djammi, sýning í höllinni, réttardagurinn með yndislegt veður, partý ársins á Víðimel og enduðum á balli á Krók.  Þetta var mjög skemmtileg helgi, Unnur fór svo aftur strax eftir helgina.  :(

Helgina eftir var stóðrétt hér, Júlli fór í göngur.  Þá var nú heldur annar gállinn á veðrinum, alveg hundleiðinlegt slydda og rok.  Við nenntum ekkert að fara á hestum í réttina þetta árið, Gullý fékk samt að ríða áleiðis heim á Tign sem Júlli var á í göngunum.  Hrossunum var keyrt frá Bakka og heim, eftir það var matarveisla á Bakka alveg æði.  Amalía var mjög ánægð með að fara í fjós með Þór.  ;)  Fórum svo á ball um kvöldið.

Nú eru hrossin okkar komin á haustbeit í Sauðanes, ég var með strengi í marga daga í höndum og handleggjum eftir að halda fótum þegar Júlli var að draga undan skeifur, þó hélt ég bara helming fóta - svona er ég orðin alger auli, ég verð að fara að þjálfa mig upp, nú eða fækka hrossum :S

Um síðust helgi fórum við Júlli með Amalíu til Reykjavíkur.  Það var verið að skíra afabarn Júlla - Guðrún Baldurdóttir heitir daman, svaka flott dama.  Ég fór aðeins í búðarráp með Dóru, Amalía var veik allann tímann, kominn með 40 stiga hita þegar við komun til Reykjavíkur á föstudagskvöldið.  Hún er orðin góð núna, við vorum heima í gær að láta okkur batna, ég var nefnilega orðin hálfslöpp líka.

Eva María og Gullý voru hér heima að passa loðnu bræður sína og Gullý hjálpaði við að koma hrossunum í haustbeitina.  Það var voða notalegt að koma heim að fínu og hreinu húsi á sunnudagskvöld, en þær drifu sig þá til Akureyrar.

Hér er allt hvítt yfir og Eva María ætlaði að fara a setja vetrardekkin sem fylgdu með í kaupunum undir bílinn en dekkin voru dæmd ónýt svo það var ekkert annað en að fjárfesta í vetrardekkjum, svona er lífið :$


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 20:29:46 / Hósa

Göngur, réttir, Mallorka

Já þetta stendur allt fyrir dyrum hjá mér.  Það eru göngur um helgina og ég fer eins og síðustu ár að ganga í Teignum og Júlli, Eva og Gullý fara ríðandi.  Þetta er alltaf svaka mikið stuð hjá okkur og vona ég bara að veðrið verði til friðs - spáin er víst að batna.  Nú svo eru réttir á sunnudag og Höfðaball um kvöldið, ég hugsa að ég verði bílstjóri í ár eins og ég hef reyndar verið undanfarið því ég er svo að fara til Mallorka með mömmu og Dóru systir á mánudag, flýg snemma á mánudagsmorgun frá Akureyri.  Þetta er allt voða spennó.  :D

Annars síðan ég bloggaði síðast hefur þetta gengið sinn vanagang, allir að vinna og Amalía í leikskólanum.  Eva og Gullý eru að klára vinnuna sína,  skólasetning verður á sunnudag eftir viku og þá eru þær fluttar inn á Akureyri svona allavega virka daga.  Það verður nú voða skrítið þegar þær fara.  Annars eru þær talsvert uppteknar með sitt og fara út að hitta vini á kvöldin eins og gengur.  Ég er alveg að verða barnapíulaus :$.  Nei ég get nú vonandi platað þær til að koma heim af og til þegar þörf er á. 

Ég er aðeins búin að fara að tína ber, það mesta var borða strax, gerði sultu úr 1 kílói - það var allt of sumt en svo er búið að færa mér sultu sem var nú bara ennþá betra að fá þetta svona bara tilbúið á krukku -  takk Hulda frábært.  Svo dreif ég mig á sveppanámskeið en hef ekkert farið að finna sveppi því það hefur ringt svo mikið og þá er ekki gott að tína þá - allir vatnssósa.  :(

Nú verð ég að fara að drýfa mig út að rukka áheit fyrir slysavarnarkonur sem ég safnaði - þær hjóluðu til Húsavíkur og gekk það flott.  Ég ætlaði að fara að rukka í dag en dreif mig svo bara á hestbak í staðinn, það var bara í einu orði sagt yndislegt, gott veður og hesturinn yndislegur.  Ég verð að skella mér fljótlega aftur á bak.  Segi þetta gott í bili læt íl mér heyra þegar ég kem að utan   Hósa


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6